Forsíða
Hallgrímur Oddsson
Með lánsfjöðrum stormfugla
Nýjasta platan mín ber heitið „Með lánsfjöðrum stormfugla” og leitar sem fyrr í blús og þjóðlagahefðina (þó nú sé daðrað nokkuð heitt við djassáhrifin). Þema plötunnar er leiðin frá sambandsslitum að fyrirgefningunni og allt það innra drama sem því getur fylgt.
Síðasta lag plötunnar „Það ber að þakka það“ var kveikjan að plötunni en lagið var samið í tilefni stórafmælis æskuvinar míns og upptökustjórinn ýtti á að ég ætti að gera plötu í þeim stíl. Ég hef löngum verið bónblíður og því fór sem fór.
Úgefið 22. mars 2023.